Mínar síður →ISENBóka fund

VerkefniLöður

Löður

Þvottastöðvar Löðurs keyra á kerfi sem Stokkur hefur smíðað og rekið síðan 2017: appið, posana á stöðvunum og bakendann sem tengir allt saman.

Viðskiptavinur
Löður
Samstarf síðan
2017
Þjónusta
Hönnun, smíði, hýsing, rekstur
Vettvangar
iOS, Android, posar og vefur
Tækni
Flutter, Google Cloud, Kubernetes, MQTT

Sækja appið

Kerfið á bak við þvottinn

Áskorunin

Á þvottastöðvum Löðurs eru þvottavélar, tímabásar, ryksugur og hlið. Löður þurfti eitt kerfi sem tengdi allan búnaðinn við greiðslur, viðskiptavini og starfsfólk.

Lausnin

Fyrsta Löðurappið fór í loftið árið 2017. Síðan hefur kerfið vaxið: bakendi sem talar við vélarnar á stöðvunum í rauntíma, mínar síður fyrir viðskiptavini og stjórnkerfi þar sem starfsfólk Löðurs stýrir vörum, verði og þvottakortum. Árið 2023 bættist við posaapp á stöðvunum.

Rekstur og þróun

Stokkur hýsir kerfið á Google Cloud, vaktar það og bætir stöðugt við nýrri virkni, til dæmis gjafakóðum, afsláttarkóðum og nýjum stöðvum.

Fleiri verkefni

Segðu okkur frá verkefninu

Hvort sem þú ert með nýja hugmynd, app sem þarf nýjan samstarfsaðila eða kerfi sem þarf að reka, er stutt samtal yfirleitt besta byrjunin. Þú þarft ekki að hafa öll svörin strax.

Um hvað viltu ræða? (veldu eitt eða fleiri, valfrjálst)
Fylltu út nafn, netfang og skilaboð til að senda.