Mínar síður →ISENBóka fund

VerkefniStrætó

Strætó

Við höfum unnið með Strætó frá árinu 2014, þegar fyrsta útgáfa Strætóappsins leit dagsins ljós.

Viðskiptavinur
Strætó bs.
Samstarf síðan
2014
Þjónusta
Hönnun, smíði, rekstur
Vettvangar
iOS, Android og vefir
Tækni
[Flutter, Google Cloud …]

Sækja appið

Frá Strætóappinu til Klappsins

Áskorunin

Breyttar neysluvenjur kölluðu á heildaruppfærslu á kerfum Strætó. Endurskoða þurfti miðakaup í vögnum og smíða app sem gæti þróast til framtíðar og væri öruggara í notkun.

Lausnin

Árið 2021 fór Klappið í loftið samhliða Strætóappinu fyrir almenningssamgöngur á höfuðborgarsvæðinu. Fyrsta útgáfa gaf notendum færi á að kaupa miða eða áskrift og staðfesta afslátt með tengingu við þriðja aðila, byggða á rafrænni auðkenningu.

Rekstur og þróun

Núverandi útgáfa Strætóappsins gerir ferðalöngum á höfuðborgarsvæðinu kleift að kaupa miða, skipuleggja ferðir og skoða lifandi kort sem sýnir hvar vagninn er staddur. Appið hefur verið í stöðugri þróun og umbótum frá upphafi með mjög góðum árangri.

„Lausnamiðað samstarf byggt á miklu gagnkvæmu trausti er undirstaða farsællar samvinnu fyrirtækjanna allt frá árinu 2014, þegar Stokkur innleiddi Strætóappið sem síðan hirti öll möguleg verðlaun í bransanum.“
Daði Áslaugarson, yfirmaður upplýsingatæknimála, Strætó

Fleiri verkefni

Segðu okkur frá verkefninu

Hvort sem þú ert með nýja hugmynd, app sem þarf nýjan samstarfsaðila eða kerfi sem þarf að reka, er stutt samtal yfirleitt besta byrjunin. Þú þarft ekki að hafa öll svörin strax.

Um hvað viltu ræða? (veldu eitt eða fleiri, valfrjálst)
Fylltu út nafn, netfang og skilaboð til að senda.