Mínar síður →ISENBóka fund
Þjónusta

Öpp, vefir og kerfi

Við hönnum og smíðum öpp, vefi og bakendakerfi, og sjáum um hýsingu og rekstur eftir að þau fara í loftið.

01

Appþróun

Öpp fyrir iOS og Android sem þúsundir Íslendinga nota á hverjum degi. Við smíðum þau til að standast álag, hvort sem það eru greiðslur, miðasala eða beinar útsendingar.

  • iOS
  • Android
  • Flutter
  • Posaöpp

Dæmi:KlappiðLottóRÚV appið

02

Vefir og mínar síður

Vefir, mínar síður og vefumsjónarkerfi sem tengjast sömu kerfum og appið, svo notendur fái sömu upplifun hvar sem þeir eru.

  • Vefsíður
  • Mínar síður
  • Vefumsjónarkerfi

Dæmi:SÝNKlapp Mínar SíðurLöður Dropi

03

Hönnun

Við mótum flæði og viðmót með ykkur áður en forritun hefst, í vinnustofu eða hönnunarspretti, og prófum frumgerðina með raunverulegum notendum.

  • Vinnustofur
  • Hönnunarsprettir
  • Frumgerðir
  • Notendaprófanir
  • Hönnunarkerfi

Dæmi:KlappiðLottó og LengjanHreyfillHappiðLöður

04

Bakendi og samþættingar

Kerfin á bak við öppin og vefina: greiðslur, innskráning og tengingar við innri kerfi og þjónustur annarra.

  • Spring Boot
  • API
  • Samþættingar
  • Greiðslugáttir

Dæmi:Löður

05

Hýsing og rekstur

Við hýsum kerfin á Google Cloud, vöktum þau og uppfærum, og höldum áfram að þróa þau eftir að þau fara í loftið.

  • Google Cloud
  • Vöktun
  • Uppfærslur
  • Þjónustusamningar

Dæmi:Strætó

Við fylgjum verkefninu alla leið

Hvort sem hugbúnaðurinn er enn hugmynd, þegar í notkun eða þarf nýjan samstarfsaðila, finnum við leið sem hentar.

1

Nýtt verkefni

Við byrjum á vinnustofu þar sem við mótum hugmyndina og smíðum frumgerð saman.

2

Yfirtaka

Við tökum út hugbúnað sem aðrir smíðuðu, gerum áætlun og tökum við þróun og rekstri.

3

Rekstur og áframhaldandi þróun

Við hýsum, vöktum og bætum kerfin í einum þjónustusamningi.

Tækni sem við vinnum með

App- og vefþróun

  • iOS
  • Android
  • Swift
  • Kotlin
  • Flutter

Bakendi og gögn

  • Java
  • Spring Boot
  • PostgreSQL
  • MySQL
  • MQTT

Hýsing og innviðir

  • Google Cloud
  • Docker
  • Kubernetes

Algengar spurningar

Hvað kostar app?

Það fer eftir umfangi. Á stuttum fundi getum við gefið raunhæfa mynd af umfangi og verði.

Þarf ég að hafa öll svörin áður en við hittumst?

Nei. Mörg verkefni byrja á stuttu samtali eða vinnustofu þar sem við mótum hugmyndina saman.

Getið þið tekið við appi sem aðrir smíðuðu?

Já. Við byrjum á úttekt á öryggi, frammistöðu og tæknilegri stöðu og gerum svo áætlun um yfirtöku.

Segðu okkur frá verkefninu

Hvort sem þú ert með nýja hugmynd, app sem þarf nýjan samstarfsaðila eða kerfi sem þarf að reka, er stutt samtal yfirleitt besta byrjunin. Þú þarft ekki að hafa öll svörin strax.

Um hvað viltu ræða? (veldu eitt eða fleiri, valfrjálst)
Fylltu út nafn, netfang og skilaboð til að senda.